Jæja, þar kom að því! Eftir mánaðalanga afneitun, …

By Una Guðlaug Sveinsdóttir

Jæja, þar kom að því! Eftir mánaðalanga afneitun, ásakanir, blóð, svita og tár hef ég loks brotist undan fargi blekkingarinnar sem sem hefur legið á mér eins og mara… já, það er þetta sem ég vil. Blogg sem snýst um mig, mig eina og bara MIG!!!!! Til hvers að deila sviðsljósinu? Gúbbý á meira skilið en það….

En allavega, þá er ég sem sagt komin með mitt eigið blogg… þar sem skottubloggið er að deyja út (vonandi verður það lífgað við). Og viljiði pæla: það er einhver manneskja þarna úti í hinum stóra heimi sem er með bloggið www.gubby.blogspot.com! Það eru greinilega fleiri sem óska þess að þeir séu fiskar (það eru hitaeiningarnar, skiljiði…). Og þar sem að nifteindin og gúbbý eru eina og sama manneskjan (ég… döh!) lá þetta beint við.

Úff, það er stormur úti… mér verður kalt við það eitt að líta út um gluggann. Ég hef ekkert farið út úr húsi í dag, nema bara í næsta hús í kaffi til Unu (nei, ekki mín!) og Þóris. Þar borðaði ég marga óhollustuna sem maður á ekki að gera þegar maður er í átaki… sé fram á mikið krass í matardagbók dagsins, sérstaklega í ljósi þess að ég borðaði fyrstu máltíð dagsins kl. 13:30 (sökum Sjallaferðar í gærkveldi)….

Skildu eftir svar