-
Cours pratiques (malfraedi og ordafordi), alla morgna fra 8 – 10. Sem thydir thad ad eg tharf ad yfirgefa herbergid mitt um sjoleytid a morgnana! Eg! En eg er alveg ad meika thad, og hef bara sofid yfir mig einu sinni… tha vaknadi eg klukkan sjo en nadi ad maeta svona tiu minutum of seint. I thessum timum sit eg og oska thess ad kennarinn bidji mig ekki um ad segja eitthvad thvi eg a i endalausum erfidleikum med ad finna rettu ordin! Uff thad er sarsaukafullt… og allur bekkurinn horfir a mig eftirvaentingarfullur…
-
Phonétique (hljodfraedi) a hverjum degi adra hverja viku fra 11:30 – 12:30. Thetta er sko keppnis, byrjum a thvi ad vera i “Repetition” i halftima thar sem kennarinn fer i eitthvad akvedid atridi og vid endurtokum. Svo er farid i “Laboratoire”, thar sem hver og einn situr vid litinn bas med heyrnartol og hljodnema. Kennarinn getur talad vid alla i gegnum sinn mikrafon og vid tokum sjalf okkur upp a segulband svo vid getum hlustad a framburdinn. Kennarinn getur lika talad vid hvern og einn ser og leidbeint vidkomandi.
-
Svo er thad Conferences (menningarfyrirlestrar)… haha, eg er i tveimur kursum. Annars vegar Litterature et cinéma français og hins vegar Les grands noms qui ont fait la France. Fyrri er a fimmtudogum fra 16:30 – 18:30 og hinn a manudogum fra 14 – 16. Eg for i fyrsta bokmennta og kvikmyndatimann i gaer og thad var… tja… spes. Tharna satum vid, hatt i 300 nemendur. Kennarinn kom, taladi i 5 minutur um Perceval le Gallois og for svo. Var tilbuinn med frakkann og allt. Svo var kveikt a kvikmynd um kappann. Thetta er orugglega ein versta mynd sem eg hef sed um aevina! Gud minn godur, ertu ad grinast! Tolum adeins um svidsmyndina. Annadhvort var hun ur pappamassa eda malud a tjold a bak vid! A einum timapunkti thotti naudsynlegt ad lata fugl koma fljugandi… hey, ekki malid, til hvers ad vera ad nota alvoru fugl thegar madur getur bara klippt brot ur teiknimynd og sett inn i! Eg veit ad thetta atti ad gerast a midoldum en haaallo! Leikararnir voru otrulegir, adalpersonan leit ut fyrir ad hafa rambad tharna inn fyrir tilviljun, undrunarsvipurinn hvarf sjaldan af andlitinu nema thegar hann stardi dramatiskt ut i tomid (minnti mig a leikadferdir Joey ur Friends). Svo voru thad songvararnir, gud minn godur, songvararnir. Hugtakid “break into song” er svo videigandi. Ohh, gud, eg er ad reyna ad lysa thessari mynd en sumt er bara svona had to see it… eins og hin ymsu svipbrigdi leikaranna. Og her kemur sjokkid… myndin var gerd arid 1979!!! Uff… madur spyr sig hvad gerist i naesta tima… Klukkan 18:30 var myndin enn i gangi en eg og bekkjarsystir min (ur cours pratiques) forum, enda hefdi myndin ekki ordid neitt skiljanlegri vid thad ad sja endinn! Svo a eg eftir ad fara i hinn kursinn, en var ad heyra thad i dag ad kennarinn eigi vist ad vera omurlegur. Hresst.
Thetta er sem sagt skolinn. Svo er thad lifid.
-
Hress gaurinn i metroinu einn morguninn i vikunni… stod tharna nett sjuskadur asamt frekar vandraedalegum midasolumanni. Eg skildi ekki alveg hvad hann var ad segja en eg held ad hann hafi verid ad bidja mig um ad kaupa fyrir sig mida i lestina… og borga i odrum gjaldmidli en peningum…
-
Einnig hress gaurinn sem eg sa ut um gluggann a straeto. Var einn a ferd med myndavel og thrifot, greinilega ahugamadur um gosbrunna. Sa til thess ad gosbrunnurinn yrdi i bakgrunni, hljop svo fyrir framan myndavelina og stillti ser upp med skelfilegasta Colgate bros sem eg hef sed (ef ekki ANTM).
-
Svo var stud ad fara i bolusetningu… her tharf madur sem sagt ad kaupa boluefnid i apoteki og hafa thad med ser til laeknisins. Mig afgreiddi madur i hvitum slopp sem virtist alveg vera starfi sinu vaxinn. Svo leid ad lokum vidskipta okkar thegar hann spurdi mig ad einhverju, eitthvad vardandi lyfsedil. Tha kom strunsandi einhver valkyrja, urradi a gaurinn og boppadi honum burt med rassinum! Lauk svo vid ad afgreida mig. Greyid madurinn stod agndofa eftir med angistarsvip og virtist a theim timapunkti liklegri til ad bera titilinn “vistmadur” en “lyfsali”.
Jaeja, langt blogg i dag. Efni naestu faerslu verdur skrifraedid i Paris… fylgist med, dunununu!