Archive for ágúst, 2006

It’s all in the family

þriðjudagur, ágúst 29, 2006
Vinnusumri 2006 er nú officially lokið. Tilhugsunin um tiltektina og pökkunina sem bíða mín er aðeins of yfirþyrmandi til að ég druslist til að byrja. Svo er það bara suður með rútu yfir Kjöl á fimmtudaginn og Universitatis Islandiae á föstudaginn. Mama mia.
Ég endurnýjaði aðgang minn að Íslendingabók fyrir skömmu síðan og get því farið að gleðja mína nánustu með hressum frösum eins og: “hey, við afi þinn erum sexmenningar” (Helga Valborg), “ekki vissi ég að millinafn langömmu þinnar væri Engilráð” (Lilý) og “við erum víst báðar komnar af Þorgerði Bjarnadóttur vinnukonu í Kálfavík” (Þórunn). Ennfremur mun ég fara að tala um fulltrúa Íslands í Rockstar: Supernova sem “Magna frænda”.
Nú ætla ég að gera heiðarlega tilraun til að ganga frá þessum pappírum sem flæða hér um allt í herberginu mínu. Jafnvel henda einu eða tveimur blöðum.

Bókmenntagreining

föstudagur, ágúst 18, 2006
Bókin Flóðhestur í garðinum eftir Ole Lund Kirkegaard er góð skemmtun. Valdís, var ég búin að spyrja þig hvort þú værir búin að lesa hana? Skötuhjúin Ósvaldur og Maren með plokkuðu hænsnin eru dæmi um aukapersónur sem eru í raun ekki nauðsynlegar fyrir gang sögunnar, en eru til staðar af kómískum áhrifum og gefa henni aukinn lit og léttleika. Sambandi Hr. Matta og Matthildar eru ekki gerð bein skil, en fyrir þá sem auga hafa fyrir slíkum hlutum má lesa um nánd þeirra á milli línanna. Vísa ég hér í setninguna sem hefst svo: “Pabbi þinn er skrýtnasti maður sem ég þekki [...]“. Einnig eru keimlík nöfn þeirra bersýnilega tákn um það hversu samhent þau eru og það að þau muni ganga saman lífsins veg til enda. Flóðhesturinn sjálfur virðist ekki eiga mikið sameiginlegt með frænda sínum, fílnum í stofunni. Hann er myndgerving hinnar óvæntu gleði í lífinu. Í bókinni er farið í það hvernig manninum er eðlislægt að afneita slíkri lukku, Hr. Matti, Mikki og Lína hjóla um bæinn þveran og endilangan í leit að eiganda “flóðhestsins”. Loks sameinast öll fjölskyldan í því að njóta þessarar gjafar og hleypa Maren flóðhesti inn í baðkar sitt og hjarta.
Una, er þér alvara? Nei. Góð bók samt.
Ég er reið við sjálfa mig fyrir að hafa ekki keypt miða á Sufjan Stephens tónleika. Gott að íhuga hlutina Una, ha, flott, frábært, til hamingju.
Litla systir mín (5) varpaði sprengju á heimilið um daginn. Um nokkurt skeið hefur hún átt sama kærastann, sem við skulum kalla P. Svo tilkynnir hún okkur skyndilega að J sé kærastinn sinn! Við nánari athugun kom í ljós að báðir piltarnir voru í náðinni… ég meina, maður þarf nú alltaf að eiga aukakærasta. Jahá.
Mamma sat á mótorhjóli í dag og fannst það geggjað. Og litla systir á tvo kærasta. Mér finnst eins og ég verði að gera eitthvað rosalega merkilegt til að vera viðræðuhæf á heimilinu, eins og að fara út í geim, læra að jóðla eða stofna fyrirtæki. Nei bíddu við… búin!

Maður var nú krúttlegur á sínum tíma

Sunnudagur, ágúst 13, 2006

I gave me away

fimmtudagur, ágúst 10, 2006
Lagið þessa dagana er Lonelily með Damien Rice. Svo fallegt.
Verslunarmannahelgin tjah… best að ræða hana ekki nánar. Til hamingju ég.
Myndir frá sextándanum hér.
Ég er kona með mission. Koma af stað átaki, prenta bæklinga, halda jafnvel í fyrirlestraferð um allan heim. Ferðamenn bara verða að vita að ÞAÐ ÞARF AÐ PANTA GISTINGU Í SKAFTAFELLI OG Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI MEÐ FYRIRVARA. Gosh! Um daginn eyddi ég þremur klst. í að redda þessu fyrir grandalausa sauði (a.k.a. ferðamenn). Endaði með að hjálpa þeim við að endurskipuleggja ferðalagið sitt frá a til ö… ég meina hvað á maður að gera þegar krúttleg eldri hjón horfa vonsvikin á mann: “Þetta var það eina sem okkur langaði að sjá á Íslandi”. Þrír tímar af lífi mínu, fullir vonbrigða, höfnunar og gremju. Þrír tímar sem ég vildi helst gleyma. Í dag var ég beðin, ekki einu sinni heldur tvisvar, um að finna gistingu á þessu svæði. Er þetta grín? Samantekin ráð um að gera mér lífið leitt? Þetta hugsaði ég en orðaði grunsemdir mínar ekki heldur brosti blítt til parsins/gamla mannsins og kom mér þægilega fyrir við símann með handbók ferðamálaráðs mér við hönd.
Ég er kona með mission.

Sjónvarpsþátturinn Pípóla

föstudagur, ágúst 4, 2006
Er þetta grín? Nei, ég tek þetta til baka. Þessir þættir eru ekki nálægt því að vera fyndnir. Nú ætti ég kannski að hafa séð meira en samtals 5 mínútur af þessu áður en ég fer að alhæfa en fjandinn hafi það! Ég get ekki gert sjálfri mér það. Sannleikurinn er sá að ég vissi þetta þegar þátturinn var fyrst auglýstur. Hana nú! Ég er Una. Ég alhæfi og dæmi áður en ég hef kynnt mér hlutina til hins ýtrasta. Hohohoho!

Nú er föstudagur um Verslunarmannahelgi og ég er ein. Ein heima í húsi með engum húsgögnum (mamma flutt suður) og ein á msn. Planið er að halda því áfram. Föstudagurinn um Versló 2006 hjá mér: náttbuxur, Kúlusúkk, Pepsi, Skjár Einn og Sirkus. Gott plan.

Sigur Rós í Öxnadal

þriðjudagur, ágúst 1, 2006

Yndislegt. (Myndatakan mætti vera betri en hverjum er ekki sama)

Tíminn líður hratt á gervihnattaöld (hoho klassík). Nú er það bara spurning um daga þangað til fólkið mitt byrjar að flýja út í heim. Ó ó.

Ég var í myndastuði í kvöld:

1. Fyrstu dagarnir heima

2. Hvalaskoðun

3. Tótupartý

4. Sigur Rós