Archive for október, 2006

Vor Akureyri

mánudagur, október 30, 2006
Vor? Nei. Snjór! Og líka:
  • Furulundarskóli þar sem móðir mín og systir búa í einu herbergi. Komið heim segi ég! Sem þær munu gera í fyllingu tímans.
  • Friends og súkkulaðiísmeðsúkkulaðibitum (þið vitið hvað ég er að tala um, þessi í 1 1/2 lítra boxunum). Mmmm og horft á Friends líka.
  • Vaknað á föstudegi og lært. Uh. Þessar 5 blaðsíður munu skipta sköpum fyrir mig í próftíð.
  • Singstar? Nei, hættu nú alveg. Pínu sorglegt skilru. (Taaaake me, to the magic of the moooment…)
  • Salatbar, Kristall plús og DD. Banvæn blanda.
  • Fjaðrakaup (læt ekki þekkja mig fyrir að fylgja ekki þemanu). Dýrt spaug.
  • Góð og hlý kaup! Ég var ekki viss um að ég væri tilbúin en jú, tíminn læknar víst öll sár.
  • Mmmm heimabökuð pizza.
  • Risk. Ég náði að halda Evrópu ansi lengi… að ekki sé talað um Indónesíu þar sem John stóð vaktina og útrýmdi heilu hersveitunum sem sendar voru af Helga og Kára til að leggja undir sig landið. Hah! Spilið endaði svo með því að Valdís átti allan heiminn.
  • Laugardagur og Nammiland í Hagkaup. Sukkinu haldið áfram með brauðstöngum á Greifanum. Puntað sig fyrir árshátíð og drukkið Passoa síðan… hvenær? Tjah, allavega síðan í MA. Á árshátíð var happdrætti og Una skvísa vann forláta hitabrúsa í felulitum. Nei, ég meinti forljótan. Kom sér samt vel, við Valdís blönduðum okkur meira Passoa í hann. Vegna tónlistarmisskilnings hlaut stemningin ótímabæran dauðdaga, og haldið var heim í fyrra fallinu. Þá er gott að eiga Friends.
  • Sunnudagur. Strax? Leti og sukk (þema helgarinnar). Sameiginlegur kvöldverður í Drekagili með mömmu, Jóhönnu og pabba Valdísar. Horft á góða stelpumynd og sukkað meira í snakki og bragðaref. (Af hverju í andskotanum fór ég ekki í ræktina í dag?)
  • Vaknað í morgun fyrir allar aldir eftir undarlegar draumfarir (Björn Bjarnason, þú færð ekki mörg atkvæði með að dansa í mínum draumum íklæddur gulum samfesting… what?)
  • Ahhh góð helgi.

Ég er týnd. Vill einhver hjálpa mér að finna mig?

Mér er kalt á tásunum

þriðjudagur, október 24, 2006
Ég get svo svarið það, Blogger er leiðinlegri en allt! Hann er leiðinlegri en ritgerðirnar í Composition I, og þá er nú mikið sagt! Ég er nauðbeygð til að blogga í gegnum tölvupóst til að svala fíkninni, og það er bara ekki eins gaman. Og kemur eitthvað skringilega út stundum. Dæs.
 
(Nú ætla ég að fara í varmasokka)
 
(Oh, engir varmasokkar inni í skáp. Sokkar niðri. Ég uppi. Ergo, engir varmasokkar á mínum tásum… bara venjulegir)
 
Í dag var ég löt og veiklunduð og líkaði ekki mjög vel við sjálfa mig. Hljóðfræði skelfir mig, prófin skelfa mig og það að geta ekki druslast til að læra heima skelfir mig. En nú ætla ég að reyna að nýta mér lífsspeki Lilýar og einblína á tilhlökkunarefni framtíðarinnar. Á morgun fer ég í plokkun og litun og verð sæt. Á miðvikudaginn byrja ég á magadansnámskeiði og mun því umbreytast í þokkafulla og framandi dansgyðju. Á fimmtudaginn fer ég norður að heimsækja Valdísi og munum við meðal annars fara á árshátíð hjá björgunarsveitinni á laugardaginn og í súperspinning á sunnudaginn (ef heilsan leyfir). Svo… svo… svo eru jólin á næsta leyti.
 
Klukkan 10 í fyrramálið fer ég í tíma í Breskum bókmenntum I. Þar verður fjallað um Lord Tennyson, hvers ljóð – "The Lady of Shalott" – varð til þess að ég fékk tilvistarkreppu í 3. bekk MA og áttaði mig á því að ég vildi læra ensku. Sem sagt, tímamóta kennslustund á morgun. Lærði ég heima? Neeeeei. (Sagt með röddu Ray McCooney úr Little Britain).
 
Ég ætla að vakna snemma í fyrramálið og fara í ræktina kl. 8.
 
Hahahahah!
 
Hahahahahahahahahhahaaahahh!

Tónlist

laugardagur, október 21, 2006
  • Fly On The Wings Of Love minnir mig á okkur Þórunni, liggjandi í brekkunni fyrir ofan Gamla að syngja og borða Haribo Stjerne Mix.
  • When You Say Nothing At All minnir mig á okkur Valdísi, að vera fyndnar í herberginu mínu í Ásabyggð.
  • Walking On Sunshine minnir mig á Dísu Boggu daginn eftir ferminguna hennar.
  • Alanis Morisette minnir mig á Helgu Auði.
  • Grease minnir mig á mig, Þórunni og Valdísi að syngja af öllum lífs og sálar kröftum á leið á Smiðjudaga/í sumarbústað/á landsæfingu.
  • Vinkonur minnir mig á Ingu Steinunni gulrót.
  • Reyndar minna öll lögin úr Ávaxtakörfunni mig á Skotturnar mínar.
  • Wild Dances og Dragostea Din Tei minna mig á útskriftarferðina og 4. bekk.
  • Queen minnir mig á Londonferðina.
  • Popcorn minnir mig á Hófí og Tomma og Bókabúð Jónasar.
  • Wig Wam minnir mig á Lilý og Halla og Shakiru og Samiru og alla sem komu í partýið góða.
  • Ra Ra Rasputin minnir mig á Moskvu og vísindakeppnina.
  • Soldat minnir mig á 23.
  • James Blunt minnir mig á haust og vetur 2005. Furðulegasta tímabil ævi minnar.
  • The Last Waltz minnir mig á brettakennslu í Sölden.
  • Fix You minnir mig á Helgu Valborgu.
  • Since You’ve Been Gone minnir mig á okkur Frances og Malibu djammið í París.
  • Leva’s Polka minnir mig á Lilý og Moussa og stórvirkin sem sköpuð voru.

Æh. Sakn.

This just in!

miðvikudagur, október 18, 2006

Gott kvöld. Ung stúlka í Fossvoginum lenti í kröppum dansi síðastliðna
nótt þegar hún komst að því að þriggja tíma blundur að degi til hefur
neikvæð áhrif á nætursvefn! Fréttaritari okkar ræddi við Unu Guðlaugu
Sveinsdóttur á sjöunda tímanum í kvöld.

- Segðu mér, hvenær komstu fyrst að því að eitthvað var ekki sem skyldi?
- Jáh, sko, þetta byrjaði eins og venjulegt kvöld. Ég tannburstaði
mig, þvoði mér í framan og fór í náttfötin. Svo lagðist ég til svefns
og eftir svona um það bil hálftíma til klukkutíma fór mér að finnast
eins og eitthvað væri að. Þannig að ég fór í huganum yfir það sem ég
gæti hafa gleymt, en allt virtist vera í lagi.
- Áttaðir þú þig á því að þú værir í raun… ?
- Vakandi já. Ég var vakandi, en þó var ég farin að sofa! Þú getur
ímyndað þér að þetta hafi komið mér í opna skjöldu. Ég vissi ekki
hvaðan á mig stóð veðrið.
- Hvenær tengdirðu þennan skort á svefni við blundinn þinn fyrr um daginn?
- Ekki í fyrstu, nei, en svo þegar ég fór að hugsa málið, virkilega
kafa djúpt í þetta, ræða við fróða menn og lesa mér til komst ég að
því að þetta væri líklegasta skýringin.
- Hvernig leið þér þá?
- Þetta var náttúrulega áfall, manni dettur einhvern veginn ekki í hug
að eins eðlilegur hlutur og þriggja tíma blundur hafi slík áhrif á líf
manns.
- Segðu mér Una, hver eru næstu skref?
- Tjah, ég tek nú bara einn dag í einu. Lífið er bara þannig að það
kemur manni sífellt á óvart og ekkert er öruggt. Sem betur fer hef ég
góðan stuðning frá fjölskyldu og vinum.

Maður er bara fyndinn í dag.

Merkilegt nokk, þá var fyrsta hanagal ekki fyrr en kl. 11 í morgun. Ef
ég hefði vitað af þessu hefði ég að sjálfsögðu reitt mig á aðrar
vöknunaraðferðir en svona er þetta haaaa… flott Una. Þrátt fyrir að
hafa drifið mig beinustu leið niður á “Hlöðu” (svöl með lingóið) náði
ég bara að lesa þrjá kafla í menningarsögu áður en þéttskrifuð
dagbókardagskráin sendi mig í verslunarleiðangur í Kringluna. Þar
þurfti ég að nálgast hinar ýmsu nauðsynjar háskólastúdínunnar, s.s.
prentarablek, skóreimar og sjampó. Nú er klukkan rúmlega hálf sjö og
ég á ennþá eftir að fara í ræktina, þvo þvott, horfa á tíma í Almennum
málvísindum sem ég skrópaði í um daginn og tjah, kannski lesa einn,
jafnvel tvo kafla í menningarsögunni. Ég og mín stóru orð.

Ostur er veislukostur

þriðjudagur, október 17, 2006
Yndislegar þessar lestrarvikur. Gefa manni gott tækifæri á að tileinka sér það námsefni sem búið er að fara í á önninni, jafnvel leysa verkefni sem liggja fyrir í framtíðinni eða bara lesa aðeins fram í tímann, sem getur nú aldrei sakað. Nema ef maður er fífl eins og ég. Oh, dagur tvö í lestrarviku og ég hef ekki lesið stafkrók. Nema, bíddu, jú áðan las ég Andréssyrpu en það hef ég ekki gert í ár og daga. Yndislegar þessar lestrarvikur, hah.
Á MORGUN (segirsálati) verður hins vegar engin svona vitleysa. Það verður bara rise and shine við fyrsta hanagal og druslast niður á Þjóðarbókhlöðu þar sem einbeitt andlit samnemenda minna munu skapa nákvæmlega það andrúmsloft friðsemdar og samviskubits sem ég þarf til að taka mér taki. Það verður sko enginn þriggja klst. blundur og svoleiðis rugl!
Mmmm, elska playlistann sem ég var að búa ti í iTunes. Hann heitir “Æði” og ég verð að segja það að nafnið hentar alveg sérdeilis vel. Nú ætla ég að blasta hann í botn á meðan ég þurrka pínu af. Ef ég les svo eins og einn kafla í breskri menningarsögu fyrir háttinn get ég með góðri samvisku hakað við allt sem ég skrifaði í dagbókina fyrir daginn í dag. Húúúúrra fyrir því!

Muscles worked: Hamstrings

mánudagur, október 16, 2006
Æh, er ég komin í ruglið? Kom beint heim úr ræktinni og fékk mér ost. Ó, þú breyska kona! Skamm skamm. En hann er bara svo góður…
Það er örmagnandi að breyta viðhorfi. Mér líður eins og ég sé með tvöfaldan persónuleika, þar sem persónuleikarnir tveir eru sífellt að rífast og aldrei sammála um neitt. Baaaah! Þegiði!
Ég ætla að fá mér ost.

Stígðu upp

Sunnudagur, október 15, 2006

Einu sinni var frábær nemandi sem vaknaði rétt fyrir níu á miðvikudagsmorgni. Skólinn byrjaði 08:20. Djöfull, hugsaði ég, æh, ég mæti þá bara í hljóðfræði kl. 10. Svo hvíldi ég augun aðeins… og endaði með því að mæta ekkert í skólann. Húrra! Mér tókst að mæta í þessa tvo tíma mína á fimmtudaginn og mun ég þá hafa mætt í 50% af tímunum mínum þessa vikuna. Nokkuð gott.

Við Halla skelltum okkur í bíó á Step Up á miðvikudagskvöldið. Sátum þarna með gelgjunum og fengum aulahroll á aulahroll ofan því þessi mynd var ekki alveg að gera sig. Reyndar var gaman að horfa á lokamegadansatriðið – því það er jú einmitt til að sjá dans sem maður fer aðallega á dansmynd. Ég hefði betur tekið Save the last dance og horft á hana – tvisvar! Oh mig langar að horfa á hana… kemur sér vel að hafa unnið 2 fyrir 1 á James Bönd á Núinu (óóóh já).

Nú er lestrarvikan farin í hönd – engir tímar fyrr en á mánudaginn eftir viku. Því var heldur betur fagnað um helgina með October fest á fimmtudaginn og karíókí á föstudaginn (first I was afraiiid yeah). Kannski fagnað aðeins of mikið, en hey, maður lifir og lærir. Nú er bara að líta björtum augum til framtíðar og rækta sjálfa sig. Nýtt viðhorf.is er komið á stjá.

Pam pam!

þriðjudagur, október 10, 2006
Rétt rúmlega ellefu hljóp ég út úr stofu 301 í Árnagarði eins og kálfur að vori. Miðannarprófið búúúúúúúúúið (úúúú)! Áður en ég klappa mér á bakið fyrir að vera búin með það, er við hæfi að ég sparki aðeins í mig fyrir að láta hlutina atvikast þannig að ég var að læra langt fram á nótt. Þrátt fyrir þriggja daga helgi… flott þetta. Allavega, allt gekk vel nema skilgreiningarnar sem ég skáldaði margar hverjar ekki svo fagmannlega. Hm.
Og nú er aldeilis kominn tími til að halla sér aftur og slaka aðeins á – nei! Sá sem heldur því fram hefur nákvæmlega enga innsýn í líf háskólanemans. Sér í lagi líf mitt sem háskólanema. Nú tekur annað við, hljóðfræðiverkefni, lestur (ávallt) og kannski væri sniðugt að reyna að vinna upp málvísindatímann sem ég hem hem skrópaði í í gær til að læra fyrir prófið. (Enn á ný, fokking þriggja daga helgi Una!)
Bah.. en fyrst: lönsj! (Eða ætti ég að segja dinner?)

Friður?

Sunnudagur, október 8, 2006
Jæja, gamli, erum við að dansa? Sjááháum til!
Hvert fór helgin? Helgin sem ég ætlaði svo mikið að nýta í að læra fyrir 40% mid-term exam í Breskum bókmenntum sem fer fram á þriðjudaginn. Fooookk, hugsaði ég þegar ég áttaði mig á því hversu mikið af glósum & glærum & studynotes ég þyrfti að prenta út. Nú er því holli lokið, það rýkur úr prentaranum hér mér við hlið, allir litir af bleki búnir (þó prentaði ég bara í svarthvítu!) og 500 blaða pappírspakkinn sem móðir mín keypti eftir panikkhringingu frá mér í gær er nánast allur komin í plöst og samanheftaður. Svo er bara eftir eitt smáræði: að lesa þetta allt saman og bókina líka! Eins gott að ég hef tíma til að blogga, hah.
Áðan ætlaði litla systir aldeilis ekki að sleppa mér upp að læra. Hún læsti höndunum um fótinn á mér og heimtaði lykilorð. Mér gekk ekki vel að giska og bað um vísbendingu. “Það byrjar á G – O – L” svarar sú stutta. Þrátt fyrir þetta átti ég enn í erfiðleikum. Enda var lykilorðið “lykill”. Elska börn.

Pirr

Sunnudagur, október 8, 2006
Blogg verða hér eftir í skeytastíl, þar sem Blogger hatar mig og vill ekki leyfa mér að blogga.
Mid-term exam. Stop.
Svooo mikið að prenta út. Stop.
Tilvistarkreppa. Stop.