Hey hó hljóðfræði!
Ég skal sko segja ykkur það. Heimur hljóðfræðinnar hefur lokist upp fyrir mér. Merkilegt hvað gerist þegar maður lærir. Próf á mánudag og ég er ekki svo stressuð eins og er. Eða jú. Kannski. Ég veit það ekki. aI d@Unt ke@r @baUt fI@r If ju: she@r @ tI@ wIð mi:
Ég ætla að vera ofur skipulögð í þessari próftíð og gera mér far um að nýta hverja mínútu. Til dæmis var planið að lesa alltaf einn kafla í menningarsögu áður en ég færi að sofa. Nú hef ég gert það í og með þessa viku og hefur gefist vel. Fyrir utan þá staðreynd að svefntímanum seinkar töluvert. Þá annað hvort sef ég lengur en æskilegt er (mesti bömmer heims í próftíð) eða er glær af þreytu allan daginn. Eins og í dag. Spurning um að endurskipuleggja skipulagið (hér á að koma ;;) kall – djöfull, ég er háð).
Á einum tímapunkti í lærdómi dagsins sat ég í mestu makindum að hlusta á upptöku af Pétri Knútssyni að þylja upp orð með "lax vowels" þegar skyndilega brestur á gítartónlist og kvenmannsöngur. Hvað er þetta brrr? hugsaði ég en þá var ég nebbla að hlusta á þetta í iTunes og æfingin bara búin og næsta lag komið í spilun hah hah. Þá hugsaði ég að best væri að blogga um þetta. Gott dæmi um það hvað dagurinn minn var spennandi (mér fannst þetta alveg jafn sniðugt í hin tvö skiptin sem þetta gerðist).
Jóhanna bauðst til þess að hjálpa mér að læra. Ég benti á það að henni gæti reynst það erfitt þar sem hún talaði ekki ensku. Jú víst sagði sú stutta og taldi upp öll ensku orðin sem hún kunni. Jess, nó, bjútífúl, momí, æ lov jú. Voðalegir sleggjudómar hjá mér alltaf hreint.
Mig langaði að blogga og nú er ég búin að því. Mig langar að sofa… og ég ætla! Engin menningarsaga í kvöld hohoho!
Er skrýtið að mér finnist pínu gaman að læra fyrir þetta hljóðfræðipróf?
Á maður kannski að skella sér í Hljóðfræði II? (róleg)
Góða nótt.