Slagorð ársins: "Campus – for school and pleasure" (strokleður).
Kveðjustund ársins: Þegar ég kvaddi Bókabúð Jónasar og alla
vinnufélaga mína þar, vitandi það að þegar ég sneri aftur væri búið að
loka búðinni fyrir fullt og allt.
Kaup ársins: Gleraugnahreinsi-kittið mitt.
Borg ársins: París, ó París!
Vöðvabólga ársins: Að dröslast með 35 kg farangur + þunga tölvutösku +
þungan bakpoka frá Íslandi til Parísar og upp í híbýli mín.
Rækt ársins: Stigarnir í 185 rue de Courcelles, þar sem ég bjó í 4
mánuði. Áttunda hæð og engin lyfta…
Vesen ársins: Að stofna bankareikning í París.
Skóli ársins: Sorbonne (svöl).
Bekkjarfélagar ársins: Reiði Gaurinn og Heimspekingurinn (Hakan og Abdel).
Stress ársins: Nú get ég ekki valið á milli, en bæði tengjast
ferðalagi til Sölden. 1) Þegar ég stóð á lestarstöðinni minni, að
leggja af stað út á flugvöll og áttaði mig á því að flugið færi eftir
1 ½ klst. 2) Þegar hélt að lestin frá Mílanó til Sölden færi kl.
10:00, kom á lestarstöðina kl. 09:10 og sá þá að lestin átti að fara
09:05.
Kvikmynd ársins: Perceval le Gallois.
Bókasafn ársins: Biblioteque de Saint Genevieve. Stofnað einhvern
tímann á 17. öld ef ég man rétt. Ég fór þangað til að skoða blogg og
vera á msn.
Heimferð ársins: Eftir partý hjá Emelie, þegar við Frances fundum
"I've never felt so happy"-kveikjarann og lampaskerm, eignuðumst
"vini" og urðum vinkonur.
Dramatískt augnablik ársins: Þegar við Lilý hlupum mót hvor annarri á
Waterloo stöðinni í London, ekki búnar að hittast í 6 mánuði.
Bar ársins: Stix.
Vonbrigði ársins: Háskóla madness.
Bakstur ársins: 5. apríl, International Pancake Day, sem ég, Frances
og Katarina héldum hátíðlegan.
Ferðalag ársins: Páskafríið. Cannes-Nice-Mílanó-Feneyjar-Mílanó og
endaði svo með að koma óvænt til Sölden! (surprise ársins)
Myndband ársins: Myndbandið af því þegar ég kom stelpunum á óvart í Sölden.
Hetja ársins: Ég, fyrir að hafa ferðast ein til Cannes-Nice-Mílanó-Feneyja.
Skyndiákvörðun ársins: Þegar ég ákvað að fara til Feneyja 10 mínútum
áður en lestin fór.
Skíðagarpur ársins: Ég.
Kaldhæðni ársins: Sjá "Skíðagarpur ársins."
Blundur ársins: Þegar ég dottaði í hljóðfræðitíma í París, fyrst
sitjandi beint fyrir framan kennarann ("Una? Uuuna?") og svo þegar við
vorum í laboratoire að taka okkur upp á segulband. Fyndið að hlusta á
þá spólu skal ég segja ykkur.
Garður ársins: Garður Monet.
Gengin-í-barndóm ársins: Disneyland í París.
Heimsókn ársins: Allar heimsóknir sem ég fékk til Parísar, þær voru
mér svo verðmætar. Halla Dögg, Mamma & Jóhanna Lan, Lilý og svo
auðvitað Team Wohnmobil!
Túristi ársins: Lilý Erla Adamsdóttir í París.
Sjónvarpsþáttur ársins: Little Britain.
Maður ársins: Moussa.
Partý ársins: Alþjóðlega matarboðið sem bekkurinn minn í París hélt,
þar sem allir komu með rétt frá sínu landi.
Safn ársins: Musée d'Orsay.
Fimmtudagskvöld ársins: Síðasta fimmtudagskvöld okkar Frances í París.
Vorum búnar að læra fyrir lokaprófið allan daginn, fórum svo í bíó og
enduðum kvöldið með að sitja í grasinu á Champ de Mars að drekka
hvítvín og horfa á Eiffelturninn blikka.
Skuggalegur fýr ársins: Gaurinn sem elti mig þegar ég var að labba
heim af próflokadjammi. "Ég ÆTLA með þér inn," sagði hann grimmur á
svip. "Non!" æpti ég og hef sjaldan verið jafn snögg inn.
Kirkja ársins: Kirkjan sem við Frances sáum svona fimmtíu sinnum í Lyon.
Vindur ársins: Brjálaði vindurinn í Avignon sem skemmdi eyrnalokkinn minn.
Nýjung ársins: MySpace.
Húfa ársins: Stúdentshúfan mín, sem fagnaði með mér 1 árs
stúdentsafmæli þann 16. júní og losnaði þá við hvíta kollinn um
stundarsakir.
Rithöfundur ársins: Kazuo Ishiguro, sem kom á Uppló í sumar og áritaði
bók fyrir mig.
Tónleikar ársins: Sigur Rós í Öxnadal.
Uppákoma ársins: Þegar Daði bróðir gekk í gallabuxunum mínum í heilan
dag, án þess að vita að þær tilheyrðu litlu systur.
Celeb ársins: Ég, á strætóskýli!
Pirr ársins: Leiðindi í Blogger.
Endurfundir ársins: Þegar Tóta kom frá Norge og Valdís kom óvænt frá
Akureyri og það var DD Gúbbý jón good times.
Lag ársins: Fix you.
Vinir ársins: Mínir. Bestir.