Archive for mars, 2007

Ef allt virðist vesen og vafstur

mánudagur, mars 26, 2007
Um helgina sat ég skátaþing í annað skipti á ævinni. Fyrra skiptið var 2004, þegar nýr skátahöfðingi var kosinn og mikil kosningabarátta í gangi; ekki varð ég svikin um drama nú frekar en fyrri daginn. Kosið var um nýja skátadagskrá, sem ég studdi fyllilega, en í tengslum við það var líka kosið um breytingu á skátalögunum. Elsku skátalögunum, sem ég lærði samviskusamlega utan að þegar ég byrjaði í skátunum (klárlega eitt besta múv á minni ævi (að byrja í skátunum sem sagt)). Svigi inni í sviga er alltaf svo hress. Allavega, ég var alfarið á móti þessu! Svo byrjuðu umræður um þetta á þinginu og ég skipti um skoðun. Og svo aftur. Og aftur. Og 27 sinnum í viðbót. Jiminn eini. Niðurstaðan: ef ég hugsaði málið út frá mínum persónulegu tilfinningum og hugmyndum um hátíðleika væru gömlu lögin klárlega málið. En ég þurfti líka að hugsa þetta með hugarfari sveitarforingjans. Hugmyndin í nýju dagskránni er sú að viss stígandi verði í starfinu, meðal annars er þetta gert með því að hjá yngstu börnunum er lögð áhersla á skátalög 1-4, hjá næsta hóp bætast þrjú við o.s.frv. Hvað inntak varðar hefur lítil sem engin breyting hefur átt sér stað í nýju lögunum, þau eru bara orðuð öðruvísi (hver grein er "Skáti er" + eitt orð, í stað setninga) og raðað í samræmi við þennan stíganda. Þau félög sem hafa verið að prufukeyra nýju dagskrána voru sammála um að börnin ættu auðveldara með að tileinka sér skátalögin í þessari mynd. Tilfinningagildið vék fyrir sveitarforingjahugsunarhættinum og nú er ég á því að þessi nýju skátalög muni auðvelda foringjum að standa að markvissu og öflugu skátastarfi. Æh, gömlu lögin munu þó alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mér… en vert er að hafa í huga að þau eru ekki einu sinni upprunaleg, skátalögunum hefur áður verið breytt.
 
 
Mæli ekki með því að fólk horfi á þáttinn American Inventor ef það vill halda trú sinni á mannkynið.
 
- Sooo… your invention is a stick?
- No. It's actually more of a wand.
 
Þessi gaur komst ekki áfram. Sörpræs, sörpræs.

POP! Goes my heart!

þriðjudagur, mars 20, 2007
Eitthvað virðist bloggandinn hafa yfirgefið mig þessa dagana. Jiminn. Ég get þó tilkynnt það að ég er búin að setja inn alveg heilan helling af myndum!
Valdís og Helgi voru hjá mér um helgina og það var ofur næs! Þau létu fara vel um sig í “byrginu” og ég dekraði við þau með skúffuköku, kjúlla og læri (mamma á heiðurinn af sumu). Valdís hjálpaði mér að velja gleraugu og þau misstu sig á 70% útsölu í Rúmfó. Auðvitað var farið á KFC fyrir Sósuna og tekinn einn Prison Break og Gilmore. Good times!

Sko mína!

Sunnudagur, mars 11, 2007
Þetta er það sem ég hef afrekað um helgina: skipta á rúminu, setja í þvottavél & þurrkara, þurrka af öllu í herberginu mínu, ryksuga herbergið mitt, setja kvittanir og drasl í möppur, koma bókmenntaglósunum úr augsýn (miðannarprófi lokið jibbíjei) og baka tvær skúffukökur! Hvaðan kom þessi dugnaður? Jú sjáið til, um hálf fimm leytið í dag sat ég á náttfötunum uppi í rúmi að horfa á Gilmore þegar ég ákvað að líta yfir farinn veg. Því er skemmst frá að segja að niðurstaðan var sú að bróðurparti helgarinnar hafi verið eytt í náttfötunum fyrir framan tölvuna. Donc, ég fékk samviskubit og þá fór ég að gera allt þetta sem ég taldi upp áðan. Klapp klapp.

Á föstudaginn var árshátíð enskunnar og ég var hress sem aldrei fyrr. Skemmti mér prýðilega þangað til mér tókst einhvern veginn að týna bæði Ingunni og símanum mínum… ekki góð blanda! Þannig að ég eyddi guðmávitahvað löngum tíma í að ráfa ein um þetta völundarhús sem Hótel Saga er! Jiminn eini! Á einum tímapunkti var ég kominn inn í eitthvað eldhús, þar hitti ég mann sem var eigi glaður að sjá mig. Hann fylgdi mér út og leitin hélt áfram. Loks fann ég enskufólk og fékk þar síma lánaðan, en þá var Ingunn farin heim og vissi ekki um símann. Sem betur fer kom hann í leitirnar, einhver stelpa hafði fundið hann inni á klósetti. Gott þetta Una.

SubjunctiveGerundProgressivePerfective

fimmtudagur, mars 1, 2007
Yo yo ég get sagt með góðri samvisku að ég hafi lært í allan dag. Hvenær sá dagur hófst er aukaatriði (einhvern tímann á milli 13:59 og 14:01). Þar sem mér tókst loksins að klára bókmenntirnar í gær var það málfræði í dag… ekki seinna vænna þar sem miðannarpróf í þeirri grein er á morgun. Enn hangir yfir mér stórt og svart mál- og menningarsögu ský. Oh my oh my. Stefnan er tekin á maraþon lestur um helgina í bland við ræktina og jafnvel eina staka gæðastund með familíunni. Hver veit nema ég geri tilraun til að fara á fætur á meðan sól er enn á lofti.
Framtíðin er alltaf að skýrast. Held það sé komið nokkuð á hreint að Ísland og þeir sem þar búa muni njóta kynngimagnaðrar návistar minnar næstu 2-3 árin. Þá er það bara spurningin um einfalt eða tvöfalt BA-próf, rússnesku eða frönsku? Allar tillögur vel þegnar.