Archive for júlí, 2007

Howdy hó

föstudagur, júlí 27, 2007

Vá, nú fékk ég dejà vu frá París… þá fór ég nebbla alltaf á bókasafnið til að fara á netið og var með fögur fyrirheit um að nýta tímann nú vel! Nú er ég einmitt stödd á Amtsbókasafninu og er hvorki búin að blogga né bóka hostel í London – já, London!

 Punktar:

  • Best summer ever held ég bara.
  • Ég fór á afmælismót skáta og var Miss Popular hvað mýið varðaði. Kannski svona 30-40 bit, bróðurparturinn á andlitinu. Bitunum fylgdu útbrot, þannig að vikuna eftir leit ég út eins og bólugrafið ungmenni og var ekki glöð.
  • Ég ákvað að skella mér á Alheimsmót skáta! Jibbíjei! Ég ætlaði ekki að fara því það var svo dýrt, en Landsbjörg gerði mér tilboð sem ég gat ekki hafnað. Ég fer með Valdísi og samforingja hennar eftir einungis 6 daga! Við verðum bara seinni helminginn af mótinu og getum svo jafnvel spókað okkur aðeins í London.
  • Mútta og Lanið komu norður og við fórum í útilegu.
  • Ég fór með Þórunni og Tedda í Kverkfjöll og það var alveg magnað!

Æh, ég nenni ekki að blogga. Látum myndirnar tala sínu máli.

Sumarbland

Útilega

Kverkfjöll