Archive for ágúst, 2008

Sumarmolar

fimmtudagur, ágúst 14, 2008
  • Einn daginn mætti ég skelfilega þreytt til vinnu 07:30. Tveimur og hálfum tíma síðar var ég að aðstoða mann og hann sagði: “Thank you Inga!” Þá hafði ég sett á mig vitlaust nafnspjald um morguninn og var því búin að sigla undir fölsku flaggi sem Inga Björk allan tímann.
  • Ferðamenn gera sig misheimakomna hér á Uppló. Einn daginn langaði mig alveg svaka mikið í Draum, en nei sá Draumur varð að engu þar sem aðgengi mitt að nammisjálfsalanum var takmarkað af manni sem lá fyrir framan hann sofandi.
  • Einn daginn var ég að aðstoða franskan ferðamann við að panta sér hvalaskoðun, en frönskukunnátta mín virðist ekki vera meiri en það að ég sagði í sífellu “la baleine,” eða “hvalurinn” (í eintölu). Skemmtileg tilhugsun að hvalaskoðunariðnaður Íslands snúist bara um einn undrahval. Free Willy hvað? Túristinn gerði grín að mér.
  • Til hamingju Flugfélag Íslands. Þegar maður skoðar flug á ensku útgáfu heimasíðu þeirra kemur “Prosessing, please wait.” Eh vandræðalegt. Fyrir þá sem ekki eru enskunemar (svöl) er processing skrifað með c-i.

Eh já, þessar sögur eru dæmi um hápunkta sumarsins. Grín.

Ég myndi telja vandræðalegu veitingahúsaferðina á meðal hápunktanna. Hún hófst þannig að við vorum allar seinar… nema Helga Valborg. Hún sat því ein í 20 mínútur á La Vita é Bella með afmælispakka. Eins og yfirgefið afmælisbarn. Við hinar létum þó sjá okkur á endanum og Helga hefndi sín með því að fá rosalega vandræðalegt hóstakast. Eftir 20 mínútur af hósti og hrygl-hljóðum bentum við henni vinsamlega (en þó ákveðið) á að fara annað með partýið. Hún sneri aftur á endanum og ég fékk pakka og við vorum glaðar. Eiginlega vandræðalega glaðar. Hlæhlæ. Það voru túristar á næsta borði við okkur, varla einn meter á milli borðanna. Þær voru ekki jafn glaðar og við. Greyin. Þegar við löbbuðum út af veitingastaðnum var Þórunn svaka hneyksluð og hélt því fram að önnur konan hefði klipið hana í rassinn. Vitni að atvikinu vildi þó ekki staðfesta þessa sögu, heldur sagði að Þórunn hefði rekið rassinn í disk konunnar.

Stór hluti sumarsins hefur farið í gæðastundir með fólkinu mínu. Spjallstundir í Hrísalundinum eða spilakvöld. Scrabble kvöldin hafa aukið orðaforða okkar svo um munar, og ef einhver mætti hundapurkulegur til leiks var brátt komið bros á varir! Því við fíum það og fjáum að vera hundapurkulegar! Í byrjun sumars vorum við Valdís ósköp duglegar að fara hringinn “okkar” í Naustaborgum, prjámuðumst þar áfram með Gullið í vagninum og ræddum hjartans mál. Æh Gullið! Ómögulegt að vera kúl í kringum Birki Kára Helgason, ekkert annað hægt en að geifla sig og gretta og gefa frá sér ýmis hljóð þar til brosið blíða birtist og gerir það allt þess virði!

Annar hápunktur myndi vera mæðgnaútilega í byrjun júlí. Við mæðgur tjölduðum á Þingvöllum í skjóli þessara fimm húsbíla sem voru á tjaldsvæðinu ásamt okkur (heimur versnandi fer). Grilluðu og grínuðumst og spiluðum ferða Trivial í tjaldinu. Svo var haldið í Húsafell að heimsækja Andreu og family sem voru þar í bústað. Á leiðinni heim var kíkt til Helga og Nadiu í Borgarfirði. Góðar fjölskyldustundir.

Landsmót skáta lét ekki lítið fyrir sér fara í sumar. Ég tók að mér að gera, ásamt Þórunni og Unni (Valdís hjálpaði líka) að gera ratleiki fyrir dagskrárnefnd. Mörgum stundum var því eytt með tölvuna á Te & Kaffi að rita rúnaletur. Landsmótið sjálft skall á, var annasamt og leið hratt.

Verslunarmannahelgin var frekar góð, skemmtileg 80’s stemning í bænum, kósíheit með Þórunni og Helgu Valborgu. Pottapartý hjá Helgu Völu og kíkt á Karó. Á sunnudeginum skelltum við Þórunn okkur í rafting í Skagafirðinum. Keyrðum eins og dólgar á Bakkaflöt, þar sem við vorum á síðustu stundu (en ekki hvað). Svo var haldið niður austari Jökulsá, geðveikt gaman!

Síðustu helgi fór ég svo á Gilwell námskeið, og er það klárlega á meðal hápunkta sumarsins. Gaman að fá að vera skáti á ný!

Skýrslu lokið.