Parísar-hjól

By Una Guðlaug Sveinsdóttir

Það eru margar leiðir til þess að upplifa París. Metrókerfi borgarinnar er mjög gott, og það tekur oft á tíðum ekki svo langan tíma að komast á milli staða. Þegar ég var hér fyrir þremur árum uppgötvaði ég einnig strætókerfið, og ég verð að segja að mér finnst það mun skemmtilegra. Þó að það taki kannski aðeins lengri tíma er bara svo miklu indælla að vera ekki grafinn ofan í jörðina. Svo má ekki gleyma því hversu skemmtilegt getur verið að ferðast um á tveimur jafnfljótum. París er alls ekki stór borg, og það tók mig til dæmis bara um einn og hálfan tíma að labba frá gömlu byggingunni minni í 17. hverfi og heim í 1. hverfi um daginn – og ég var nú bara að rölta í rólegheitum.

Í gær prófaði ég nýjan ferðamáta í fyrsta sinn – hjól. Þannig er mál með vexti að á hverju föstudagskvöldi skipuleggur “Paris Rando Vélo” hjólaferð, þar sem stór hópur fólks (allt upp í 300 manns) hjólar um alla borg í fylgd vanra hjólreiðamanna sem halda utan um hópinn og stöðva umferðina. Við stöllur ákváðum að skella okkur, já ég ákvað að fara þrátt fyrir að vera annálaður lúði þegar kemur að hjólreiðum. Ég neita því ekki að ég var frekar stressuð – þegar ferðinni lauk eftir tvo og hálfan tíma var ég orðin rosalega stirð í fingrunum eftir að hafa haldið dauðahaldi um stýrið, og þegar ég missti jafnvægið og rak hjólið í manninn við hliðina á mér hélt ég að ég myndi deyja úr vandræðalegheitum! En engu að síður var ótrúleg tilfinning að þjóta um breiðgötur Parísar á hjóli með vindinn í hárinu, og maður upplifði borgina á nýjan hátt. Gaman.

2 svör to “Parísar-hjól”

  1. Skotta segir:

    hey elskan, af hverju er ég svona lengi að komast í gang með að skoða síður… oh. hví hef ég ekki verið alltaf hér inni bara alltaf síðan þú fórst frá mér *sniff* btw þá er ritgerðin mín megaljótar 2 bls úr því sem komið er, haha. brrrr. ritstífla dauðans.
    EN (og já ég capsaði þig) á hitt borðið þá sakna í þín og vil fara í bústað strax. nenniru að koma.

  2. Valdís segir:

    Núúú, ég hélt að þetta hefði verið tour de Fance sem þú varst að hjóla í…

Skildu eftir svar